Heimur Ástbjargar
Leitarbox

26.04.2007 15:15:46 / astbjorg

vandræði

Þegar gleði og hamingja virðist ætla að taka við af leti og þungum þönkum, þá verður alltaf eitthvað sem skemmir fyrir eins og til dæmis það að nú fyrir viku síðan ákvað bíllinn minn að hætta að virka og það kostar mig líklega meira að láta laga hann til eigin notkunar heldur en ef ég reyni að gera við hann og selja hann svo bara til þess að fá viðgerðarkostaðinn til baka :( sem er alls ekki gott og því er ég ekki alveg í skýjunum þessa dagana. svo er ekki alltof gott andrúmasloft á milli mín og nokkura fjölskyldu meðlima þannig að ég hef verið annar staðar en þar í 4-5 daga kom heim í dag og það virðist vera eins og málið hafi verið sett í pásu en ég finn samt að það leynist þarna og mun brjótast upp á yfir borðið þegar þannig stendur á að ég má litið vera að því að bæta eða segja mínar skoðanir á því..... jæja ætlaði bara að kvitta fyrir mig og látta vita að ég væri á lífi kv. Ástbjörg

» 1 hafa sagt sína skoðun

04.04.2007 16:35:02 / astbjorg

GLEÐILEGA PÁSKA

æðislegt djamm síðustu helgi og sú næsta lofar góðu :) ætla að reyna að komast smá út á lífið um páskana :) litlan fer nefnilega í bústaðar ferð með ömmu Auði :) fer á skírdag eftir fermingar veislu og ég næ svo í hana á laugardaginn :) jæja ætlaði bara rétt svo að látta heyra í mér :) gleðilega páska Ástbjörg gella 

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.03.2007 01:54:13 / astbjorg

Vangaveltur um hitt og þetta

Ég er langt frá því að vera fullkominn og það er margt sem ég hefði mátt gera betur en ég veit af flestum mistökunum og hef vonandi lært af þeim.það er til dæmis mjög erfitt að reyna að lifa eftir einhverjum stöðlum sem þjóðfélagið setur okkur það er svo margt sem að er ekki við hæfi og ætti að vera þannig en ekki svona í mínu lífi. Ég hef hins vegar kosið að lifa ekki bókstaflega eftir því hvernig fólki finst að það ætti að vera (dæmi um fólk sem ég á við eru foreldrar mínir). Einn af mínum bestu vinum er barnsfaðir minn ég get talað við hann um allt og ég þarf ekkert endilega að fá einhverjar lausnir það er bara nóg að geta talað út sín vandamál án þess að vera dæmdur fyrir þau, við eigum yndislega dóttur saman og hún er sólargeislinn minn. Mér hefur alltaf fundist fólk búa til of mikið vesen í kringum börninn sín þegar foreldrarnir eru ekki saman. Ég verð að játa að við höfum alveg fengið okkar skerf af veseni og oftar en ekki var það ég sem byrjaði allt saman en það bjargaðist vegna þess að við töluðum um málin og viti menn misskylningur er aðal ástæða vandamálana. Mér þykir ofboðslega vænt um þennan mann og óska honum alls hins besta hvort svo sem mér eigi eftir að líka það eða ekki þá erum við tengd það sem eftir er , það er skondið að hugsa til þess að við eigum hugsanlega eftir að eiga barnabörn saman :D ég veit ekki af hverju mér þykir þetta fyndið það er það bara.

Ég veit ekki af hverju en ég hef aldrei getað hugsað mér að vera með yngri manni þanngað til nýlega þegar ég kyntist gaur sem að virtist hafa meiri þroska en margir af þeim karlmönnum sem ég hef eitthvað verið kennd við, þess vegna gaf ég honum séns. En ég reyndist hafa rangt fyrir mér með þennan gaur og ég sé svo sannarlega ekki eftir honum. Ástæðan fyrir því að ég nefndi aldursmuninn er það að ég virðist bera fordóma fyrir svoleiðis samböndum, þannig er að systir mín er í sambandi með gaur sem er mikið yngri,og ég hef gagnrýnnt hana svolitið fyrir það. Ég sé eftir því í dag því að hún er hamingjusöm og þetta er ekki eitthvað sem kemur mér við.

Hvers vegna er svona erfitt að rifa sig upp úr gamla farinu og fara loksins að lifa lífinu? Ég hef fengið marga sénsa til þess en aldrei notað þá. Ég kem bara með einhverjar afsakanir og fresta öllu vegna þess að hlutirnir eru betri svona. Nema þeir eru það ekki mig langar að gera svo margt en mun fresta þeim vegna þess að það gæti verið eitthvað meira spennandi að gerast í kvöld eða á morgunn eða í næstu viku, næsta mánuði og svona heldur þetta áfram og áfram þangað til ég er að drepast úr þunglyndi. Og já ég tel mig hafa upplifað þunglyndi þó það hafi kanski ekki verið nema vægt tilfelli og ég náð að koma mér upp úr því hægt og rólega. Og þá er ég samt ekki að tala um þennan sængurkvenna grát sem að flestar mæður upplifa eftir fæðingu. Nei þetta var allt annað mál það skipti enginn máli og það var ekkert sem gat hjálpað og mér leið svo hræðilega ég var bara ein og það var allt svo ömurlegt.

Börn eru svo yndislega einlæg og fyndinn, ég var að svæfa litluna í kvöld og hún bað meira segja sjálf um að fara að lúlla :) ennnnnnnnnnn það var samt ekki séns að hún færi að sofa, það er viss rútína heima sem við fylgjum borða, náttföt, tannbursta, kyssa góða nótt og svo rúm eftir lestur. En nei ekki í kvöld það vill svo til að Sólhildur elskar tannburstann sinn vegna þess að henni finst svo gott bragð af tannkreminu :) og það mátti ekki hjálpa henni sem er reyndar alltaf vandamál en ekki neitt í líkingu við þetta kvöld úff barnið er svo erfitt stundum jæja ég næ af henni tannburstanum og næ að trufla hana með því að biðja hana um að fara fram og kyssa afana sína sem og hún gerði og svo förum við saman inn í herbergi en hún var ekkert á því að fara að sofa :( alveg sama hvað ég las eða söng hún ætlaði ekki að leggjast á koddann, það var ekki fyrr en mamma kom heim sem að ég skildi hvað var að hún var ekki búin að kyssa ömmu góða nótt! :) hún fékk því að fara fram og fékk kossinn og reyndi að þrjóskast við þegar ég nefndi rúmið en í þetta skiptið stein sofnaði hún næstum því áður en hún lagðist á koddann :)

jæja nægar pælingar í bili kveðja Ástbjörg 


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.03.2007 01:56:08 / astbjorg

vinir vina

ég skil ekki hversvegna vinir vina minna geta búið til svona mikið vesen án þess að sjá, heyra eða skilja að þeir hafi verið að búa til vandræði ég tel mig ekki vera erfiða í umgengni ég er að vísu mjög feimin við ókunnuga og á þá til að segja ekki orð nema á mig sé yrt. þess vegna skil ég ekki hvers vegna fólk er að búa til einhverjar sögur um það að ég hafi sterkar skoðanir á einhverjum sérstökum atburðum sem að ég vissi ekki einu sinni af fyrr en í fyrradag, svo er annað ég hef aldrei komið fram við nein með hatri eða anduð þess vegna skil ég ekki að fólk geti sakað mig um gleði þegar sá hinn sami ætlar sér eitthvað sem ég gæti glaðst yfir ef ég virkilega misslíkaði þessa persónu. Hér með vil ég koma því á framfæri að ég hata engan og ber enga kal til neins, ef ég hef komið fram við einhvern á þann hátt þá var það alls ekki meiningin og eftil vill var ég bara í einhverju vondu skapi þegar sá hin sami fanst hann/hún skynja hatur eða andúð frá mér. 

 

annars er allt gott að frétta af mér og litlu skvís við erum byrjaðar á sund iðkun en og aftur eftir langa pásu og henni fanast æði í sundi, en ég held að hún sé eitthvað hrædd við sturturnar því hún fór að há gráta greyið þegar við fórum inn í sturtuklefan bæði fyrir og eftir sundið :(  


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.02.2007 02:13:12 / astbjorg

janúar

Jæja loksins nenni ég að blogga, janúar mánuður er búin að vera mér erfiður. Amma elsku amma er farin frá mér ég fæ ekki að njóta þess að heyra þessa yndislegu og góð hjörtuðu konu spyrja mig út  árangurinn hjá  Sólhildi Sonju. Fæ ekki að horfa á hana brosa til mín og Sólhildar þegar skotta gerir eithvað sniðugt eða nýtt, ég ætla að fara varlega í það að ræða hið stóra leyndarmál hvort að til séu einhverjar leiðir fyrir hina látnu til þess að hafa samband við okkur sem erum lifandi, en ég viðurkenni þó að mér finst það meira en litið líklegt þar sem ég hef heyrt hinar ýmsu sögur og orðið vör við ótrúlegum hlutum og tilfinnigum sem gætu samt allt eins verið tilviljanir en ég kýs að trúa því að svo hafi ekki verið.  Mig langar til dæmis að trúa því að amma hafi komið til mín morgunin sem hún dó. Nóttin var erfið og ég svaf ekkert gat það ekki ekki það að ég hafi ekki verið þreytt ég bara gat ekki fengið það af mér að sofna svo tók ég ákvörðun um að vaka bara þá gæti ég reynt að snúa sólarhringnum hennar Sólhildar við en hann hafði raskast þegar hún var veik. Jæja ég er vakandi um níu og hugsa með mér æj ég leyfi henni að sofa í hálf tíma í viðbót. Ég sofna þarna í milli tiðini að ég held því að það er ekkert að marka tímaskynið hjá manneskju sem er ekkert eða litið búin að sofa jæja ég er annað hvort sofandi eða í svefn móki þegar ég finn einhvern leggjast í rúmið hjá mér og strjúka mér um vangann hvísla svo að mér jæja elskan nú verð ég að kveðja . ég vakna svo við síman vitandi hvað sagt yrði,því amma hefði komið til mín.

Svo var kistulagninginn frekar erfið ég hef aldrei farið í svoleiðis áður og var frekar sterk til þess að byrja með hélt að þetta yrði ekkert mál og að ég gæti komist í gegnum þetta áfallalaust, svo var ekki ég sat þannig að ég sá framan í afa þegar hann fór og kvaddi ömmu það var eitt það erfiðasta sem ég hef upplifað og ég brotnaði niður, ég reyndi að þurka tárin og safna í mig kjark til þess að standa upp og svo þegar röðin var komin að mér þá lít ég niður og sé ömmu. Þá rann upp fyrir mér að þetta yrði í seinasta sinn sem ég liti hana augum og ég bara varð að komast út. Ég sé ekki eftir þeirri ákvörðun að hafa farið í kistulagninguna en ég kýs að minnast ömmu frekar lifandi vil ekki muna hana svona. Jarðaförin var ein sú allra fallegasta sem ég hef farið í og  mér þótti vænt um að heyra fólk minnast á það að svona hefði hún amma viljað hafa þetta, því að allt var gert til þess að hafa þetta þannig . Dagana fyrir jarðaförina var ég að reyna að koma saman minningargrein en ég gafst upp á endanum því að ég gat ekki komið þessum orðum sem ég hafði á blað, ekki þannig að ég hefði orðið ánægð með það.  

 

Sólhildur er orðin svo dugleg að tala er farin að mynda setningar og sú fyrsta var “ mamma kúra “ ég var ekkert smá stolt :) núna er hún malandi allan daginn og það er bara frábært þvi að þá heyri ég í henni ef að hún er að ráfa frá mér :P núna hljóma ég eins og ég sé slæm mamma :( en það er bara þannig að þessi börn eru alveg ótrulega fljót að skjótast hingað og þanngað um húsið og því er eins gott að loka ollum herbergjum sem að hún á ekki að komast í

 

kveðja Ástbjörg



 


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.01.2007 04:35:01 / astbjorg

erfið vika

3 vika ársins Sólhildur fékk kvef og hita og var alveg hræðilega litil í sér fyrsta kvöldið gat bara ekki sofnað og það var alveg sama hvað ég reyndi að gera :( mamma, pabbi og ég vorum búin að skiptast á að ganga um með hana og rugga með hana í stólnum en ekkert gekk þannig að ég var farin að hafa áhyggjur af því að halda vöku fyrir öllu heimilis fólkinu þessa nóttina :( ég ákvað því svona rétt fyrir 1 leitið að fara með hana einn rúnt um hverfið vegna þess að hún sofnar yfirleitt í bílnum og já það svín virkaði við vorum varla komnar út götuna heima þegar ég heyrði hrotturnar.... ég varð samt svona til öryggis að keyra um í 10 mín svo að ég væri viss um að hún vaknaði ekki þegar ég tæki hana inn ... Sólhildur er öll að hressast enþá með kvef en er að ná því úr sér loksins :) úff ég bara trúi því ekki hvað þessi vika er búin að fljúga áfram ... þriðjudaginn fór ég með Sólhildi til læknis á barnavaktina í Domusmedica vegna þess að ég hafði áhyggjur af því að hún væri kanski komin með eyrnabólgu hún var búin að vera að fikta eitthvað svo mikið í eyrunum ... læknirinn sagði að það væri smá vökvi í öðru eyranu og að ég skildi ekki hafa áhyggjur af því vegna þess að hún væri ekki búin að fá eyrnabólgu áður og að venjulega ná börn að laga þetta alveg sjálf ef maður gefur þeim tíma ... þetta var sem sagt ekki eyrnabólga :) ... miðvikudagurinn flaug einhvern vegin fram hjá mér ... fimmtudagur ja ég hringdi í vinnuna bað um frí vildi ekki vera að vinna vegna veikinda Sólhildar og vegna þess að mamma og pabbi voru á spítalanum hjá ömmu var ég heldur ekki með pössun nema ef systir mín myndi passa og það gerði hún líka ... ég bara varð að komast aðeins út var eiginlega ekkert búin að fara síðan á föstudeginum 12 jan ... jæja ég fer út ætla að skafa rúðuna að framan á bílnum mínum og hvað haldiði að hafi gerst???? Það hafði fallið snjór af þakkinu á húsinu og beint á rúðuna farðegameginn :( rúðan var sprunginn!!! Ég ákvað nú samt að fara bara á bílnum ég sá vel út mín megin og þetta var ekki eins mikið og ég hélt í fyrstu .... jæja þegar komið er á vín sitja þar Gnúsi og Moli og ég náði að rústa þeim í spilum :) ég helt fyrst að þeir væru að leyfa mér að vinna .... á leiðini heim fæ ég erfitt símtal frá pabba amma fer líklega að fara .... þegar ég lagði á brotnaði ég alveg niður gat varla talað í einhverjum rökum við Gnúsa .. ég skutlaði honum heim og eftir að hann hafi sagt mér að ég gæti leitað til hans ef ég þyrfti á einhverjum að tala við kvöddumst við ... ég var komin út innkeyrsluna hjá honum þegar ekinn byrjaði og svo komu tárinn og svo grátur ... ég hef ekkert grátið vegna veikinda ömmu fyrr en þarna ætli ég hafi ekki vilja vera sterk en ég gafst bara upp vil ekki byrggja þetta svona inni vil frekar geta syrgt hana og munað svo góðu stundirnar .... veikindi ömmu eru búin að hvíla þungt á okkur fjölskylduni það er svo vont að hugs til þess að hún sé að þjást svona, vona að hún passi vel upp á engillinn minn hana Alexöndru þegar þær hittast :) ég vil trúa því að þannig verði það, þegar amma kveður fer hún til hennar og saman vaka þær yfir mér og Sólhildi Sonju ... svona eins og í bænini sem amma kenndi mér þegar ég var yngri :) .... ég á eftir að sakna hennar svo sárt en ég veit að hún lifir áfram í minniguni. Kveðja Ástbjörg p.s. komst að því að það eru 13 Ástbjargar lífandi á landinu og af þeim eru 3 náskyldar mér

» 2 hafa sagt sína skoðun

11.01.2007 02:36:56 / astbjorg

mín reynsla af sorg

Það er margar leiðir til þess að takast á við sorg, en ég held samt að það sé enginn rétt eða röng leið fólk verður bara að gefa þeim sem syrgja tækifæri til þess að tjá sig ef að það hefur þá áhuga á því og aldrei þrýsta á eftir þeim. ég hef ekki verið mikið að hugsa út í þetta fyrr en núna, ég veit bara að maður getur þroskast mikið það er allavegana mín reynsla hingað til. Þegar ég missti Alexöndru hélt ég að ég fengi að vera í friði með sorg mína en það reyndist mér erfitt sérstakleg þar sem ég var umkringd af ólettum konum .... það var alveg sama hvert ég fór það voru ólettar konur alls staðar og mér fanst svo erfitt að öfunda þær ekki og ljót af mér að hugsa “ afhverju kom þetta fyrir mig en ekki þær,, svo lenti ég í hálfgerðu rifrildi við Edda um það hvort ég ætti rétt á fæðingar orlofi eða ekki !!! hann hélt því fram að þar sem ekkert barn væri til staðar þá gæti ég ekki átt rétt á því að fá borgað úr orlofssjóðnum .... þetta fanst mér andstyggilegt af honum og ég sagði honum þá að ég ætti barn eini munurinn á okkur sem foreldrum væri sá að hann væri það heppin að hans drengur svæfi rólegur út í vagni en mín stúlka sem ég hefði vissulega fætt inn í þennan heim væri í fossvogskirkjugarði grafin hjá foreldrum Arnórs ... eftir þetta fór ég líka að taka öðru vissi á sorgarferlinu ég var opinn og sagði bara hreint út hvernig staðan væri ef ég var spurð, ætli ég hafi ekki verið aðeins of opin í nokkur skipti ;) ég gleymi til dæmis aldrei svipnum á Kollu (stelpa sem var ráðin inn á meðan ég var í fríi ) þegar ég var að koma og sækja Guðrúnu í stað þess að bíða og horfa á þær ganga frá fór ég að hjálpa þeim og þar að leiðandi kom sú spurnig hvort ég væri að vinna þarna ég sagðist vera í fæðingar orlofi og áður en hún gat óskað mér til hamingju sagði ég henni að Alexandra væri látinn hún fraus horfði á mig með furðu svip vissi ekkert hvernig hún ætti að svara þessu en á endanum vottaði hún mér samúð sína ... ég var samt ekkert að sækjast eftir henni vildi bara forða mér frá særindum og þess vegna fanst mér betra að segja frá þessu ferkar en að byrgja þetta inni... ef til vill er ég að spá extra mikið út í þetta vegna þess að amma er veik og svo er jarðaför á morgunn sem að ég er reyndar ekki að fara í en foreldrar mínir munu mæta í... það lést nefnilega ungur strákur sem bjó í sömu húsa röð og við í engjahverfinu, þennan strák og systur hans passaði ég stundum (ætli hann hafi þá ekki verið á svipuðum aldri og Sólhildur er núna hann var allavegana það ungur að hann fékk en  pela ) mikið getur lífið verið óréttlátt......  :(  ég vil hér með votta fjölskyldu hans alla mína samúð.   

Ég vona að þetta hafi meikað einhvern sens fyrir þeim sem lásu þessa færslu ég veit ekki alveg hvort að þau skilaboð sem ég ætlaði að hafa í þessari færslu hafi komist til skila ... vildi bara segja frá minni reynslu og hvernig ég tókst á við þetta kv. Ástbjörg


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.01.2007 03:29:58 / astbjorg

amma mín

Ég er það lánsöm að hafa fengið að kynast ömmum og öfum mínum, það eru nefnilega ekki allir það heppnir..... ég hef reyndar ekki verið dugleg við það að heimsækja þau síðustu ár og er virkilega farin að sjá eftir því núna þegar að amma mín hér heima á Íslandi er orðin virkilega veik .... hún er með lungna krabbamein :(  en eins og Imba frænka sagði við mig núna nýlega þá er aldrei of seint að byrja að skapa góðar minnigar þess vegna ætla ég að reyna að standa mig betur í því að heimsækja hana og afa ... ég hef reyndar verið mjög dugleg að fara reglulega til noregs að heimsækja bestemor og ég sé alls ekkert eftir því núna, það er samt svo oft sem ég gleymi því að bestefar sé farin ..... í hvert skipti sem ég sé ömmu standa í komu salnum í molde án hans fæ ég smá saknaðar sting í hjartað... ég held að örsök þess að ég virðist gleyma þessu sé það að ég fór ekki í jarðaförina hans :(  

 

 



Ég hef ákveðið að hætta að reykja, ég veit að það verður örugglega erfitt en ég ætla að gera mitt besta... mér finst þetta líka vera góður tími þar sem ég er að fara að missa ömmu mína vegna reykinga og ég vil gefa börnunum mínum og vonandi barnabörnum séns á því að eiga minnigar um mig..... og það að hætta hlýtur að auka líkurnar á því að það geti gerst....

 

 



Ég á sjálf margar góðar minnigar um ömmu og ég á eftir að sakna hennar sárt þegar hún kveður

 

 



Ein sú skondnasta er til dæmis úr sumarbústaðar ferð sem við fórum öll fjölskyldan í :) þegar amma var plötuð til þess að standa upp á grinverkinu með prik í hendini til þess að reyna að fá betra síma samband .... ég held að það hafi verið hann pabbi sem plataði hana svona .... svo á ég líklega alltaf eftir að tengja ilminn af nýbökuðu kexi við ömmu því að það fanst alltaf svo vel lyktin af því í garðinum í skipholtinu :) það var bakarí þar nálægt ...... mér þótti alltaf svo gott að vera hjá ömmu og afa þegar ég var yngri og þá man ég vel eftir því að hafa hringt sjálf eitt skiptið í ömmu og spurt hvort ég mætti ekki gista hjá þeim :) ég held ég hafi verið fimm sex ára :)   

með sorg og von í hjarta   Ástbjörg :cry:


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.01.2007 02:04:17 / astbjorg

áramótin mín

Áramótunum var varið heima í faðmi fjölskyldunar ;) það var alls ekki eins slæmt og ég hélt að það yrði, reyndar hélt ég ekkert að það yrði eitthvað slæmt ;) systur pabba og fjölskyldur þeirra voru hjá okkur ásamt afa Jens sem að stoppaði reyndar bara yfir matinn  því hann vildi kikja á ömmu öllu sem að liggur inn á hringbraut :( við sendum henni ástarbréf sem allir kysstu á með varalit og skrifuðu svo undir :) Sólhildur fékk líka smá varalit og kyssti á bréfið ;) Afi kom svo aftur þegar skaupið var að klárast... ég veit ekki hvernig mér fanst þetta skaup ég náði ekki að einbeita mér að því vegna þess að ég varð fyrir svo mikilli truflun frá kærustu frænda míns :( þetta er eflaust fín stelpa málið er bara að hún er með svo yfirþyrmandi hlátur að það kæfði niður alla þá einbeitingu sem ég var að reyna að beina að sjónvarpinu, svo varð hún alltaf að útskýra hvað var að gerast sem að henni fanst svona fyndið eða endurtók það sem leikaranir sögðu :(  jæja annars fanst mér hún ágætt ... eftir skaupið var hóp þrýstingur á mig að koma með Sólhildi Sonju út að horfa á flugeldana og ég gaf undan!!!  Við vorum ekki búnar að standa lengi úti þegar að ein tertan fór á hliðina og sprakk yfir okkur öll, ég fann rykið fara yfir andlitið á mér og var fljót að skýla Sólhildi og hlaupa inn ... ég er skíthrædd við svona drasl... jæja var inni í einhverja stund og hætti mér aftur út þegar að nágrannarnir og fjölskyldan tóku sér pásu á því að skjóta upp og náði þá nokkrum góðum myndum af mér og Sólhildi eða þar að segja Allý frænka tók þær ;) takk fyrir það Allý mín. þegar að klukkan var að ganga eitt var lillan orðin pirruð og þreytt vildi bara fá að kúra í fanginu á mér ... ég gekk aðeins nokkra hringi um herbergið hjá mér og 2 mínutum seinna var hún stein sofnuð rumskaði ekkert alla nóttina, við yngri kynslóðin skemmtum okkur konunglega við spjall og fíflagang og sú eldri rifjaði upp gamla tíma með sögum frá liðnum árum.... ég hefði reyndar alveg viljað heyra Jóla söguna sem pabbi segir vísst ekki nema á kanski 10 ára fresti (er mér sagt) en hann var að klára hana þegar ég kom inn aftur... Íris sæta frænka var í svaka stuði þangað til henni varð eitthvað flökurt greyinu :( ég vona að henni líði betur og að þynkan hafi ekki verið að gera útaf við hana í dag ....  Teddi skelti sér í partý hjá Hrannari sem býr bara hérna í næstu götu við mig með honum fóru vinur hans og kærasta hans sem að reyndist vera systir hennar Gyðu nokkuð skondið að rekast á hana heima hjá mér ;) það fóru flest allir til síns heima um 3-5 leitð held ég ja fyrir utan Allý, Imbu og Gunna, við Allý röltum yfir til Jón Þórirs og Gyðu til rétt svo til að segja hæ og óska þeim gleðilegt nýtt ár :) þekkti ekki fólkið sem var hjá þeim fyrir utan Alistair og Aron þannig að þetta var bara stutt stopp við frænkurnar röltum svo aftur heim til mín og sátum svo til kl 7 á spjalli við Imbu og Gunna, mamma og pabbi fóru að sofa um 6 þar sem að mamma elskan átti að mæta í vinnu um hádegi og pabbi var orðin þreyttur.... sem var valdur að því að ég þurfti að sjá um að koma Imbu og Gunna út, og þar sem ég  er nú ekki þekkt fyrir mikin dóna skap varð það úr að þau voru  ekki farin fyrr en um 7 leitið .... og það þýddi að ég fékk 3 tíma í svefn þar sem Sólhildur var vöknuð um 10 hálf ellefu :(  þessi nýárs dagur fór í allgjört leti eftir að við Sólhildur höfðum skutlað Allý heim því ég var ekki að meika mikið Sólhildur var því sett í leikgrindina og unni sér vel þar næstum allan daginn á meðan ég sat og horfði á Narníu sem var sýnd á disney rásini  jæja ég vona að samveru stundirnar verði margar og góðar á nýja árinu ég óska ykkur öllum gæfu og farsældar á árinu 2007 og takk fyrir allt það góða á því gamla              Ástbjörg í leti      


» 1 hafa sagt sína skoðun

31.12.2006 04:57:39 / astbjorg

Góða skemmtun og farið varlega :)

ég var að lesa bloggið hjá Allý frænku minni... þar lýsir hún árunum sem líða eins og bókum sem við eigum aldrei eftir að lesa aftur en við eigum eftir að muna eftir að hafa lesið þær einhvern tíma...

jæja hún er betri penni en ég þið kikjið bara á þetta hjá henni ...

það eru nokkrar hefðir sem að eru mér heilagar um ára mót og þær eru að horfa á frétta annálana... lesa dagbækurnar mínar gaman að lesa hugsanir sem eru manni löngu gleymdar... ég hef skrifað þær síðan árið 1999... þannig að ég get líka fylgst með því hvað ég hef þroskast síðan þá ;) ... önnur hefð hjá mér er að vera inni með hundinum á meðan allir eru úti að skjóta upp flugeldum, við eigum það sameiginlegt að vera hundhræddar við þetta allt saman ;) mér finst samt alveg gaman að horfa á þær bara ekki standa úti í hættu á því að fá eitthvað í augað eða eitthvað en verra :(  hef nefnilega lent í því að þurfa að stökkva undir borð til þess að forða mér frá rakettu sem sprakk yfir mig þegar ég stóð á svölunum í Vallenginu ... nágranna konan fékk glóð í augað en ég slapp :(  sem betur fer var þetta ekki neitt alvarlegur bruni hjá henni  jæja elskurnar ég vona að þið skemmtið ykkur varlega :)  svo vitið þið af því að það er opið hús hjá mér ef að þið eigið leið um grafarvoginn á gamlárs- nýársnótt ;) kveðja Ástbjörg


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.12.2006 06:01:53 / astbjorg

Skemmtileg leið til þess að rifja upp árið 2006

1. hvað gerðiru á árinu sem þú hefur aldrei gert áður?

2. stóðstu við nýársheitið og ætlarðu að strenja nýtt heit?

3. fæddi einhver náinn þér barn á árinu?

4. Dó einhver náinn þér á árinu?

5. Fórstu eitthvað til útlanda?

6. Hvað myndir þú vilja hafa á árinu 2007 sem að þig skorti á árinu 2006?

7. hvaða dagsetningar á árinu 2006 munu ávaltt vera þér minnistæðar? Og hvers vegna?

8. hver var besti árangurinn hjá þér á árinu?

9. En mistök?

10. slasaðir þú þig eða veiktistu á árinu?

11. Hver voru bestu kaupinn hjá þér?

12. varðstu eitthvað frægari en þú varst árinu áður?

13. Hvað gerðirðu til að afla þér penning?

14. Hvert fór megnið af penningunum þínum?

15. Var eitthvað sem þú varðst svaka svakalega spent/ur fyrir á árinu?

16. Hvaða lag mun ávalt minna þig á 2006?

17. miðað við þennan tíma á síðasta ári ertu:
#. hamingjusöm/samur eða  leið/ari?
#. Grennri eða feitari?
#. Ríkari eða fátækari?

18. Hvað hefðiru viljað gert meira af á árinu?

19. Hvað hefði mátt vera sem minnst af?

20. Hvernig eyddirðu Jólunum?

21. Varðstu ástfanginn á árinu?

22.hversu mörg einar nætur gaman?

23.besti staður sem þú stundaðir kynlíf á, á  árinu?

24. Hatar þú einhvern núna sem þú hataðir ekki á þessum tíma í fyrra?

25. besta bók sem þú last?

26. hvað var mesta tónlistar uppgvötuninn hjá þér í ár?


27. Hvað langaði þig í og fékkst ?

28. besta mynd ársins?

29. hvað gerðiru á afmælinu þínu?

30. Hvaða eina atriði hefði gert þetta ár mikið betra?

31. Hvernig var þinn persónulegi fatastíll á árinu?

32. Hvað hélt þér í jafnvægi?

33. af 1-10 hvernig myndirðu nr. Árið 2006?

34. Hvar heldur þú að þú verðir nákvæmlega eftir ár?

35. hvern saknaðirðu á árinu?

36. Hver var skemmtilegasta nýja persónan sem þú kynntist á árinu?

37. Einhver lærdóms rík lífsreynsla og hver þá ?


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.12.2006 04:13:25 / astbjorg

úff óþefur aldarinar

 
 
gær dagurinn fór allur í tiltekt og vinnu :S jólahreingerningar heima fyrir .... sem betur fer bara herbergið mitt ;) já heyrðu er ekki stolt af þessu en já það var búið að vera einhver skrítinn lykt í herberginu mínu í 2 sólahringa og ég búin að reyna að komast að því hvað gæti angað svona þetta var einhver súr mjólkur ælu lykt þannig að það fyrsta var að taka rúmið hennar Sólhildar í gegn og þrífa það hátt og lágt man samt ekki til þess að hún hafi eitthvað ælt í langan tíma ...... jæja þegar því var lokið var en þessi lykt til staðar og þá var farið í það að endur raða í skúffurnar hennar Sólhildar svona til vonar og vara ef ég gæti hafa slysast til að setja eitthvað óheint í skúffurnar.......hmmm en fanst þessi lykt og ekkert var óhreint í skúffunum :S næst var það rúmið mitt en ekkert angaði þar ..... og ég tók mér sóp í hönd og sópaði allri ló undan rúminu og til þess að athuga hvort eitthvað leyndist þar sem að gæti öllið þessari angan.... en ekkert fanst og þá var tíminn á þrotum þurfti að fara að vinna ... brjálað að gera í ógeðslegu veðri !!! 3 dagar til jóla og íslendingar halda sig ekki frá innkaupunum vegna veðurs!!! ég sem var að vonast eftir rólegu kvöldi NEI allt vitlaust að gera frá fimm til níu stóð ég sveitt þyrst og í síkó þörf yfir heitu grílli að steikja fjölla og peppa ;(  það tók mig svo þrju korter að vaska upp sósubrúsana og ganga frá áður en alvöru tiltektinn byrjaði en hana varð ég að framkvæma ásamt því að steikja helling að borgurum... venjulega fæ ég frið til þess að ganga frá eldhúsinu en ekki þetta kvöld... vegna þess að nú eru jólin alveg að koma og allt opið langt fram eftir kvöldi og ég fæ svo svangt fólk á leið heim, til mín..... æj ok það var eiginlega fínt að hafa eitthvað að gera ..... jæja þegar ég kem heim var mamma búin að finna örsök þessara ógeðslegu lyktar sem var föst í herberginu mínu !!!!  Stútkanna frá Sólhildi Sonju með mjólk í hafði skorðast bak við kommóðuna  hennar og súrnað þar :$ ojjjjjjj   ég ráðlegg ykkur að forðast það að leyfa börnunum ykkar að drekka mjók á svefnstað ykkar vegna svona óhappa ..... ;) ég ætla ekki að gera það oftar fer frekar með hana fram ef hún vaknar þyrst á nóttuni......

jæja er loksins orðin þreytt og ætla í háttinn kv. Ástbjörg :haha:

» 2 hafa sagt sína skoðun

21.12.2006 02:30:58 / astbjorg

allt að gerast

Allir að muna eftir því að kikja við á kaffivín á Þorláksmessu kvöld :)
jólin alveg að skella á og þetta ömurlega veður ætlar greinlega ekkert að breytast :whut: vona að það verði smá jóla snjór á aðfangadag helst þegar ég fer í kirkjugarðinn að leiðinu hennar Alexöndru og að það sé blankalogn :S það er bara mikið fallegra að fara þangað að vetri til þegar það er smá snjór og sjá öll kertinn lýsa upp garðinn :D síðustu jól var rok og á mörgum leiðum var kviknað í krönsunum við leiðinn og helst vildi ég bjarga þeim öllum en það hefði verið of mikil vinna fyrir mig og ég var komin í tíma þröng :$ jæja allavegana jóla innkaupinn eru eitthvað að klikka hjá mér var að finna 4 gjafir sem ég ætlaði systur minni :( hmmm gleymdi að ég var búin að kaupa gjöfina hennar úff hvað ég get verið dofinn!!!
 
hmmmm hellingur að ské er komin með boð í fjögur áramótapartý spurning hvort ég velji úr eða fari bara í þau öll ;) það er alveg mögulegt svo er ég að hugsa um að vera bara á bíl þetta árið.... er oft skemmtilegra þá tekur maður betur eftir því sem er að gerast í kringum mann og þá þarf maður ekki að bíða í helvítis leigubíla röðini í 2 og hálfan tíma!!!
 

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.12.2006 00:53:31 / astbjorg

helginn

Helginn ..... ætlaði að fara í afmælið hans Bjarka á laugardeginum og stóð líka við það nema hvað ég talaði minst við Bjarka :( sat og spjallaði við Auði, Brynju og Atla mest allt kvöldið.........fór svo með Atla á bæjar rölt og við hittum Hróa og sænskan frænda hans.....hittum svo Maríönnu og Sigrúnu vinkonu hennar ...... enduðum á Hressó, sem að mér finst eiginlega ekkert varið í svona þegar maður er á djamminu........leiðinlega troðið þarna og leiðinlegir gaurar sem eru uppáþrengjandi og ýtnir

 

 



Afhverju þarf lífið alltaf að vera mér svona erfitt?... :S Ég komst að því að Röggi laug að mér helling ...... skil ekki afhverju hann var að því, það er ekki eins og ég hafi verið að ljúga að honum er bara búin að vera hreinskilinn við hann, ætli Guggus hafi rétt fyrir sér er hann haldinn sjúlegri þörf fyrir því að ljúga....... æjjj ég vil ekkert fara út í þær lygar sem ég er búin að komast að en þær eiga bara ekki rök fyrir sér..... koma mér ekki við og eru bara svo ótrúlegar að mig langar bara að forða mér sem lengst í burtu frá honum svo að hann fái ekki tækifæri á því að ljúga meiru að :whut: mér  Hver væri þá meiri gunga ég eða hann? Ég að forða mér vegna þess að ég er hrædd um það að hann særi mig eða hann fyrir að búa til lyga vef til þess eins að látta vorkenna sér eða gera lífið meira spennandi...... :$ æjjj ég veit ekki alveg hvað ég er búin að koma mér úti...... svo var hann litið að hafa fyrir því að hitta á mig um helgina ..... var heima í 6 daga hitti mig á þriðjudeginum í 3 eða 4 tíma kikti svo á mig í vinnuna á fimmtudegi..... og svo hitti ég hann seint á laugardeginum um nóttina!!!! Og hann var orðin vel í glasi þetta kvöld endaði líka illa þurfti að koma honum heim og á leiðinu út af Hressó rekst hann í einhvern gaur sem var ekkert allt of sáttur við það ..... hmmm ég reyni að afstýra slagsmálum og þá verður allt vitlaust allt í einu komnir 3 eða 4 dyraverðir draga hann út og henda honum niður í tröppuna ..... ég stend og horfi á furðulostinn skil ekki hvað er að gerast .... og svo kemur einhver gaur og byrjar að reyna að tala hann til ..... sem að var alveg að virka þar til þessi gaur sem að ég myndi lýsa sem sterrafjalli segir honum að nota þá þjálfun og það dæmi sem hann kann til þess að taka hann niður úff ég verð að segja að mér var ekki sama..... og þá veit ég líka ekkert um þjálfunina sem Röggi er í en þetta var STÓR gaur !!! svo að ég náði að tala vit í þá báða og dró Rögga í leigubíla röðina ....... og þar komst ég að þessum lygum og vitleysu ..... ég var reið :^) en gat samt ekki fundið það í mér að skilja hann eftir einan því að hann var svo drukkinn.... og það var kalt úti ........ :( skammaði hann samt helling þegar hann vaknaði og fékk bílin hans lánaðan til þess að sækja Sólhildi Sonju til Auðar og fara með hana heim...... svo fékk ég hann til þess að skutlast með mig að sækja bílinn minn ... en ég hafði lagt honum niðri bæ svo að ég gæti fengið mér í glas á laugardags kvöldinu, hmmm ég er að hallast að þeirri skoðun að það sé ekkert sniðugt að vera með Rögga þar sem hann hefur ekki beint haft fyrir því að vera heiðarlegur við mig :frown:

jæja verð að fara að sofa,  Ástbjörg ekki ánægð


» 5 hafa sagt sína skoðun

16.12.2006 01:30:13 / astbjorg

ástbjargar koktaill

<>
</><>
</>
How to make a astbjorg
Ingredients:

1 part friendliness

3 parts ambition

1 part joy
Method:
Combine in a tall glass half filled with crushed ice. Add a little emotion if desired!


Username:http://www.go-quiz.com/cocktail/cocktail.php">Username: name="uname">

Personality">http://www.go-quiz.com/cocktail/cocktail.php">Personality cocktail
From Go-Quiz.comhttp://www.go-quiz.com">Go-Quiz.com>

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Dagatal
febrúar - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28
FyrriNæsti
RSS tengill